Abdul Aziz boðar byltingu 13. júlí 2007 01:00 Abdul Rashid Ghazi, næstæðsti klerkur Rauðu moskunnar í Íslamabad, var borinn til grafar í gær í þorpinu Basti Abdullah. MYND/AFP
Maulana Abdul Aziz, hinn handtekni æðstiklerkur Rauðu moskunnar í Íslamabad, fékk í gær leyfi til að stjórna bænahaldi við útför hins fallna bróður síns, Abdul Rashid Ghazi, helsta leiðtoga uppreisnarmanna moskunnar. „Ef guð lofar, þá verður íslömsk bylting brátt gerð í Pakistan,“ sagði Aziz við útförina. „Blóð píslarvottanna mun bera ávöxt.“ Árás hersins á moskuna nú í vikunni hefur orðið vatn á myllu strangtrúaðra múslíma í Pakistan og bæði talibanar og al-Kaída hafa nú boðað hefndaraðgerðir. Í gær var efnt til mótmælafunda á að minnsta kosti þremur stöðum í Pakistan og í norðvesturhéraðinu voru gerðar tvær sjálfsvígsárásir. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hefur á hinn bóginn áunnið sér virðingu hófsamari múslíma í landinu fyrir að ráðast til atlögu gegn hinum strangtrúuðu öflum sem höfðu hreiðrað um sig í moskunni, í hjarta höfuðborgar landsins, skammt frá þinghúsinu og hæstarétti. Fyrir fimm árum hét Musharraf því að ná tökum á þúsundum íslamskra kóranskóla, svipuðum þeim sem tengdust Rauðu moskunni í Íslamabad, sem margir telja uppeldisstöðvar fyrir herskáa múslíma. Shaukat Aziz forsætisráðherra segir að stjórnin muni nú grípa til harðra aðgerða gegn öllum slíkum skólum, sem tengjast herskáum öflum.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira