Erlent

Sagðist lyginn hommahatari

Maður í Massa­chusetts í Bandaríkjunum reyndi heldur óhefðbundna leið til að koma sér undan kviðdómsskyldu á dögunum. Hann tilkynnti dómaranum að hann væri algerlega óhæfur til starfans, væri lyginn, hommafælinn og kynþáttahatari.

Dómarinn efaðist um trúverðug­leika mannsins og spurði hann hvort hann væri hugsanlega að ljúga því að hann væri lygari. „Ja, ég veit það ekki. Það gæti svo sem verið,“ svaraði maðurinn. Móðir hans varði meinta hreinskilni mannsins en dómarinn var lítt hrifinn og lét hneppa hann í varðhald.

„Á ferli mínum hef ég aldrei séð neinn jafnákveðinn í að sleppa undan kviðdómssetu,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×