Erlent

Neita að framselja Fujimori

Alberto Fujimori
Alberto Fujimori

Hæstaréttardómari í Chile hefur neitað að framselja Alberto Fujimori til Perú. Yfirvöld í Perú vilja fá Fujimori, sem var forseti landsins frá árinu 1990 til 2000, framseldan vegna gruns um að hann hafi látið drepa 25 manns. Forsetinn er einnig grunaður um mútur og að hafa misnotað opinbert fé.

Fujimori verður í stofufangelsi í Chile í þrjá mánuði til viðbótar þar til fimm hæstaréttardómarar hafa kveðið upp endanlegan dóm um hvort eigi að framselja hann eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×