Erlent

Fimm handtökur í hryðjuverkarannsókn

Rannsóknarlögreglumenn á vettvangi í gær þar sem jeppa í ljósum logum var ekið á innganginn að flugstöð Glasgow-flugvallar í fyrradag.
Rannsóknarlögreglumenn á vettvangi í gær þar sem jeppa í ljósum logum var ekið á innganginn að flugstöð Glasgow-flugvallar í fyrradag. fréttablaðið/ap

Breska lögreglan gerði húsleit í byggingum í grennd við Glasgow í Skotlandi og á Mið-Englandi í gær og tóku fimmta manninn fastan í leitinni að þeim sem grunaðir eru um að hafa tengst bíl-árásinni á flugstöð Glasgow-flugvallar og bílsprengjutilræðin sem koma tókst í veg fyrir í Lundúnum. Einni af flugstöðvarbyggingum Heathrow-flugvallar var lokað í gærkvöld vegna grunsamlegs pakka sem þar fannst.



Hryðjuverkaógnin sem Bretar standa frammi fyrir er „langvarandi og stöðug,“ sagði Gordon Brown forsætisráðherra í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar. Það er ljóst, sagði hann, að „við erum, almennt séð, að fást við fólk sem tengist al-Kaída.“



Á föstudag tókst lögreglu að hindra samræmd sprengjutilræði í miðborg Lundúna, þegar sjúkraflutningamenn urðu varir við reyk koma frá Mercedes Benz-bifreið sem lagt hafði verið fyrir utan fjölsóttan næturklúbb. Í ljós kom að bíllinn var hlaðinn sprengiefni. Fáeinum stundum síðar fannst annar Benz fylltur sams konar sprengiefni.

Og á laugardag óku tveir menn Cherokee-jeppabifreið i ljósum logum á inngang flugstövarbyggingarinnar á Glasgow-flugvelli.



Peter Clarke, yfirmaður hryðjuverkavarnadeildar bresku rannsóknarlögreglunnar Scotland Yard, sagði í gær að æ skýrari tengsl væru að koma í ljós milli árásarinnar í Glasgow og sprengjubílanna í Lundúnum. Lögreglan hefði nú þegar orðið margs vísari um þá sem hlut hefðu átt að máli.



Hann sagði hins vegar að það gæti tekið margar vikur að safna sönnunargögnum úr öryggismyndavélum.

Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkahættu var hækkað í efsta stig í Bretlandi í gær.



Jacqui Smith innanríkisráðherra sagði eftir fund með æðstu mönnum öryggismála í landinu að þjóðin myndi ekki láta hryðjuverkamenn beygja sig. Hún hvatti almenning til að vera á varðbergi.

Mennirnir tveir úr árásinni í Glasgow voru í haldi lögreglu, annar þeirra með alvarleg brunasár á sjúkrahúsi.



Götu við sjúkrahúsið var lokað í gær á meðan lögregla sprengdi grunsamlega bifreið. Engin sprengiefni fundust þó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×