Erlent

Sungið í minningu Díönu

Prinsarnir á sviðinu á Wembley í gær.
Prinsarnir á sviðinu á Wembley í gær. fréttablaðið/ap

Bresku prinsarnir Vilhjálmur og Harry buðu í gær tugþúsundir gesta velkomna á minningartónleika um móður þeirra, Díönu prinsessu, á nýbyggðum Wembley-leikvang­inum í Lundúnum.



Díana hefði orðið 46 ára á þessum degi, og 31. ágúst næstkomandi verða rétt tíu ár frá andláti hennar í bílslysi í París.



Á tónleikunum tróð upp sumt af uppáhaldstónlistarfólki prinsessunnar ástsælu, þeirra á meðal Tom Jones, Nelly Furtado og Duran Duran, en einnig yngri listamenn á borð við Kanye West, P. Diddy, Joss Stone og Lily Allen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×