Erlent

Leiðtogar Afríkuríkja hvetji Mugabe til að bjóða sig ekki fram

Oddur Ástráðsson skrifar
Robert Mugabe
Robert Mugabe AFP

Leiðtogar nokkura ríkja í sunnanverðri Afríku eru nú á leið til Tansaníu þar sem þeir munu funda um ástandið í Simbabve. Líklegt er talið að leiðtogarnir muni sameiginlega hvetja Robert Mugabe forsta Simbave til þess að sækjast ekki eftir endurkjöri í forsetakosningum að ári. Einnig er búist við því að á fundinum verði rætt um fjöldamorð í Kinshasa, höfuðborg lýðveldisins Kongó í síðustu viku. Evrópskir sendiherrar hafa staðhæft að þá hafi minnst 600 farist í átökum stjórnarhers og stjórnarandstæðinga.

Morgan Tsvangirai leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokks Simbabve var handtekinn örðu sinni á stuttum tíma í gær þegar lögregla gerði áhlaup á höfuðstöðvar flokksins. Svo virðst sem Mugabe reyni nú allt til að kæfa alla andstöðu við sig. Stjórnmálaskýrendur telja að nú fjari hratt undan völdum Mugabe sem setið hefur sem forseti í rúman aldarfjórðung. Efnahagsástandið í landinu er afar bágborið, verðbólga nærri 1700 prósentum og um 80 prósenta atvinnuleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×