Erlent

Hundur bjargaði lífi konu

Hundaeigandi í Maryland í Bandaríkjunum segir golden retriever-hundinn sinn Toby hafa bjargað lífi sínu. Konan var við það að kafna á eplabita þegar hundurinn beitti Heimlich-aðferðinni svokölluðu á hana og bjargaði henni. Toby hoppaði á bringu konunnar sem lá í andnauð á gólfinu að sögn. Konan segist hafa för eftir þófa Toby á bringunni og sé honum svo þakklát að á vissan hátt sé hún einnig með þófaför hans í hjartanu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×