Erlent

Bretland tekur nýja stefnu

Tröppur bústaðar breska forsætisráðherrans sópaðar fyrir leiðtogaskiptin í dag.
Tröppur bústaðar breska forsætisráðherrans sópaðar fyrir leiðtogaskiptin í dag. fréttablaðið/ap

Nýr forsætisráðherra tekur við völdum í Bretlandi í dag: Gordon Brown, sem hefur heitið því að endurheimta traust almennings, endurskoða stefnuna í Íraksmálum og taka á hryðjuverkaógninni með nærgætnari hætti eftir áratugar valdatíð Tonys Blair.



Arftaka hins fjölmiðlavæna Blairs skortir útgeislun fyrirrennarans og það verður ekki hlaupið að því fyrir hann að hrista af sér þann flekk á orðstírnum að hafa þjónað í ríkisstjórn sem leiddi þjóðina inn í hið gríðarlega óvinsæla stríð í Írak.



En skoðanakannanir benda til að Verkamannaflokkurinn sé að njóta góðs af leiðtogaskiptunum. Í einni könnuninni mælist Verkamannaflokkurinn nú með meira fylgi en Íhaldsflokkurinn í fyrsta sinn síðan í október.



Flestir forsætisráðherrar fá að njóta eins konar pólitískra hveitibrauðsdaga. Fáir bjuggust þó við að hinn frekar ferkantaði fyrrverandi fjármálaráðherra hlyti mikla lýðhylli um leið og hann tæki við embætti. Sumir álitu leiðtogaskiptin jafnvel til þess fallin að gefa hinum unga og metnaðarfulla leiðtoga Íhaldsflokksins, David Cameron, aukin sóknarfæri.



Fram til þessa hefur Brown tekist að snúa þessum væntingum sér í hag með því að birta áform um breytta stefnu innanlands sem utan og setja með því eigið mark á forsætisráðherraembættið.



Embættismenn í Washington fullyrtu í gær að í dag yrði Blair formlega útnefndur sérlegur erindreki Kvartettsins svokallaða – Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og Rússlands – sem vinnur að því að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×