Erlent

Hulu svipt af leyniskjölum CIA

james schlesinger fyrrverandi forstjóri CIA
Hneyksli sem komu upp á áttunda áratugnum leiddu til þess að nýjar reglur voru settar fyrir CIA, FBI og aðrar njósnastofnanir.
james schlesinger fyrrverandi forstjóri CIA Hneyksli sem komu upp á áttunda áratugnum leiddu til þess að nýjar reglur voru settar fyrir CIA, FBI og aðrar njósnastofnanir. fréttablaðið/getty

Leyniþjónusta Bandaríkjanna CIA birti í gær 693 blaðsíður af leyniskjölum um misferli hjá CIA sem voru skráð í kjölfar hneykslis á á miðjum áttunda áratugnum eftir að upp komst um innanlandsnjósnir stofnunarinnar.



Meðal þess sem lesa má um í skjölunum eru áætlanir um að myrða erlenda leiðtoga á borð við Fidel Castro á Kúbu, tilraunir gerðar á borgurum að þeim óafvitandi með lyf á borð við LSD sem breyta hugsun og hegðun, hleranir á bandarískum blaðamönnum, njósnir á mannréttindafrömuðum og baráttufólki gegn Víetnamstríðinu, bréf sem fóru á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og Kína voru opnuð, innbrot á heimili fyrrverandi starfsmanna CIA og fleira.



„Þetta eru æðstu stjórnendur CIA að fara í skriftastólinn og segja: Fyrirgefðu mér faðir því ég hef syndgað,“ sagði Thomas Blanton, yfirmaður Þjóðaröryggisskjalasafnsins sem óskaði eftir því að skjölin yrðu birt með vísan til upplýsingalaga.



Árið 1974 fletti blaðamaður ofan af innalandsnjósnum CIA. Í kjölfarið skipaði yfirmaður CIA, James Schlesinger, starfsmönnum að greina honum frá öllum vafasömum fyrri eða yfirstandandi aðgerðum. Afraksturinn varð þessar 693 blaðsíður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×