Erlent

Leitað að Madelaine á heimili Breta í Portúgal

Ekkert hefur spurst til Madelaine litlu frá því hún hvarf 3. maí síðastliðinn.
Ekkert hefur spurst til Madelaine litlu frá því hún hvarf 3. maí síðastliðinn.
Lögregla í Portúgal hefur aftur hafið leit á heimili þrjátíu og þriggja ára Breta, sem er búsettur nálægt hótelinu sem Madelaine McCann hvarf frá í maí síðastliðnum. Hann er eini maðurinn sem hefur opinberlega verið grunaður um að hafa rænt stúlkinni, en hann hefur ávallt neitað því að hafa nokkuð haft með hvarf hennar að gera. 10 lögreglumenn með hrífur og trjáklippur leita nú í þykkum gróðri í garði mannsins. Leitin er gerð í framhaldi af því að sjónarvottar sögðust hafa séð stúlkuna í Belgíu, í fylgd breskrar konu og hollensks manns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×