Erlent

Sakaður um vanþekkingu

Ehud Olmert lagar á sér skyrtukragann Gagnrýndur fyrir að þekkja lítið til hermennsku.
Ehud Olmert lagar á sér skyrtukragann Gagnrýndur fyrir að þekkja lítið til hermennsku. MYND/AP

Vaxandi þrýstingur er á Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, um að segja af sér, nú þegar um ár er liðið frá því hann sigraði í þingkosningum.

lmert og fleiri ráðherrar í ríkisstjórninni fá á sig harða gagnrýni í fyrsta hluta skýrslu um rannsókn á Líbanonstríðinu frá í sumar.

Bæði Olmert og Amir Peretz varnarmálaráðherra eru sakaðir um fákunnáttu í hermennsku, sem hafi valdið því að þeir hafi tekið rangar ákvarðanir í upphafi stríðsins, sem stóð í 34 daga.

Skýrslan er unnin af þingnefnd og verður birt í dag, en sumar niðurstöður hennar höfðu borist fjölmiðlum í gær.

Ísraelski herinn hóf árásir á Líbanon í júlí eftir að skæruliðar Hezbollah-hreyfingarinnar í Líbanon höfðu tekið tvo ísraelska hermenn á sitt vald. Hernum tókst hvorki að brjóta Hezbollah á bak aftur né að frelsa ísraelsku hermennina úr gíslingu, en þetta tvennt átti að verða meginmarkmið stríðsins.

Í skýrslunni er þess ekki krafist að þeir segi af sér, en hún mun engu að síður grafa enn frekar undan stöðu Olmerts, sem nýtur æ minni vinsælda í Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×