Erlent

Gul neitar að draga til baka framboðið

Hávær mótmæli voru höfð uppi í miðborg Istanbúl í gær
.
Hávær mótmæli voru höfð uppi í miðborg Istanbúl í gær . MYND/AFP

Hundruð þúsunda manna höfðu uppi hávær mótmæli í miðborg Istanbúl í gær. Kröfðust mótmælendurnir afsagnar ríkisstjórnar Tyrklands sem þeir óttast að sé að leiða þjóðina í átt til íslamskra stjórnarhátta.

„Tyrkland er veraldlegt ríki og þannig á það að vera,“ hrópuðu mótmælendurnir, sem margir hverjir ferðuðust langar leiðir til að taka þátt. Margir sögðust líta á það sem föðurlandsskyldu að taka þátt í mótmælunum: „Þeir eru að reyna að blekkja landsmenn. Eftir fáein ár springur allt í loft upp,“ sagði Ilteris Mutlu, tvítugur námsmaður.

Mikil spenna hefur ríkt að undanförnu milli stjórnarinnar, sem nýtur stuðnings um þriðjungs landsmanna, og hers landsins sem hefur sakað stjórnvöld um að vera hliðholl islömskum öflum í samfélaginu. Stjórnarflokkurinn þykir hafa stutt við bakið á róttækum múslimum, meðal annars með því að styðja skóla sem byggir á Kóraninum og reyna að fá aflétt banni við því að konur noti höfuðklúta í skólum og opinberum skrifstofum.

Abdullah Gul utanríkisráðherra hefur boðið sig fram til forseta, en náði ekki sigri í fyrstu umferð forsetakosninganna á föstudaginn. Það er þing landsins sem kýs forseta, en í staðinn fyrir að kjósa Gul vísaði þingið málinu til stjórnarskrárdómstóls landsins.

Abdullah Gul segir ekki koma til greina að draga framboð sitt til baka.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×