Erlent

Eignuðust sína aðra prinsessu

Krónprins Spánar
Krónprins Spánar

Letizia Spánarprinsessa og Felipe krónprins eignuðust heilbrigða stúlku í gær og er hún annað barn þeirra hjóna. Hefur litla prinsessan fengið nafnið Sofia.

Hún er númer þrjú í röðinni til að erfa spænsku krúnuna á eftir föður sínum og eldri systur sinni Leonor, sem fæddist í október árið 2005.

Fari svo að þau Letizia og Felipe eignist son síðar meir fer hann fram fyrir systur sínar í erfðaröðinni. Margir telja að þessi lög séu löngu orðin úrelt og Leonor eigi að erfa krúnuna á undan yngri systkinum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×