Erlent

Fídel Kastró kominn aftur

Chavez, forseti Venesúela, segir vin sinn Fídel Kastró aftur tekinn við stjórnartaumunum á Kúbu. Kastró hefur ekki komið fram opinberlega síðan hann veiktist í fyrrasumar og afhenti Raul bróður sínum völdin.

Jafnvel var talið að Kastró ætti ekki afturkvæmt í embætti en Chaves fullyrðir að hann sé á batavegi og hafi að mestu tekið völdin aftur í sínar hendur.

Forseti Bólivíu, segist viss um að Kastró fagni 1. maí með löndum sínum í Havana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×