Erlent

Plastpokum úthýst úr smábæ

Bann við innkaupapokum úr plasti gengur í gildi í enska smábænum Modbury á vesturströnd Englands í dag. Bærinn er fyrsta samfélagið í Evrópu sem bannar plastpokana.

Í bænum eru 43 verslanir og sammæltust eigendurnir um að pakka vörum sínum í pappír og setja í taupoka, til að mótmæla hinum mengandi plastpokum. Talið er að taupokarnir geti síðar orðið safngripir.

Það var íbúi í bænum, Rebecca Hoskins, sem átti hugmyndin að herferðinni, en hún hefur gert heimildarmynd um plastmengun fyrir BBC-sjónvarpsstöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×