Erlent

Villst á fatafellu og lögregluþjóni

Karlkyns fatafella hefur verið kærð fyrir að þykjast vera lögreglumaður.Stuart Kennedy, 24 ára erfðafræðinemi, sem gengur undir listamannsnafninu Eros, var klæddur í lögreglugervið á leið á nektardansstað þegar tveir raunverulegir kvenkyns lögreglumenn sáu hann og spurðu hvaða erindi hann ætti inn á staðinn.

„Ég sagði þeim að ég væri fatafella en þær trúðu mér ekki,“ sagði Kennedy. Þær fóru þá á eftir honum inn, horfðu á sýninguna og handtóku hann fyrir að villa á sér heimildir. Ekki er víst hvort málið fer fyrir rétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×