Erlent

Eitruð risakarta slær met

Toadzilla. Risakartan hefur verið kölluð Toadzilla í áströlskum fjölmiðlum. 
Fréttablaðið/ap
Toadzilla. Risakartan hefur verið kölluð Toadzilla í áströlskum fjölmiðlum. Fréttablaðið/ap

Stærsta karta sem um getur fannst á dögunum nærri Darwin í Norður-Ástralíu. Hún mældist yfir 20 cm að lengd – 40 cm með fætur útteygða – og nærri eitt kíló að þyngd.

Risakörtur af þessu tagi eru eitraðar og mikil plága á þessum slóðum. Yfirvöld hafa hvatt fólk til að veiða þær hvar sem til þeirra næst. Þær voru upprunalega fluttar til Queensland-héraðs í Norður-Ástralíu frá Hawaii á fjórða áratugnum, í því skyni að hamla gegn útbreiðslu ágengrar bjöllutegundar sem gerði ræktendum lífið leitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×