Erlent

Dráttarvél ekið á herbúðir

Send var mynd af sigri hrósandi liðsmönnum „flughers“ Tamílatígra eftir árásina í fyrradag.
Send var mynd af sigri hrósandi liðsmönnum „flughers“ Tamílatígra eftir árásina í fyrradag. MYND/AP

Liðsmaður Tamíla-tígranna ók dráttarvél hlaðinni sprengiefni á herbúðir á Austur-Srí Lanka í gærmorgun. Sprengiefnið sprakk við hliðið inn í herbúðirnar og kostaði að minnsta kosti níu manns lífið, að sjálfsvígsökumanninum meðtöldum.

Árásin var gerð degi eftir að Tamílatígrarnir efndu til sinnar fyrstu loftárásar, er þeir vörpuðu sprengjum á herflugvöll fyrir norðan höfuðborgina Colombo. Í þeirri árás fórust þrír hermenn og 16 særðust.

Hingað til hafa átökin takmarkast að mestu við aðalíbúasvæði tamíla á norður- og austurhluta eyjunnar, en árásin í fyrradag sýndi að nú eru uppreisnarmenn tamíla færir um að færa þau langt inn á kjarnasvæði sinhalesíska meirihlutans í suðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×