Erlent

Vonir um endurreisn heimastjórnar

á kjörstað Kaþólsk nunna mætti á kjörstað til að greiða atkvæði.
á kjörstað Kaþólsk nunna mætti á kjörstað til að greiða atkvæði. MYND/AFP

Íbúar Norður-Írlands gengu til þingkosninga í gær og eru vonir bundnar við að kosningarnar geti markað endurreisn heimastjórnar á Norður-Írlandi.

Undanfarin fjögur og hálft ár hefur stjórnmálamönnum ekki tekist að ná samkomulagi um samstarf. Bresk stjórnvöld ætlast til að nýtt þing muni skipa tólf manna heimastjórn í næstu viku og hefur Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sett 26. mars sem lokafrest. Blair hefur hótað því að leysa upp þingið ef samkomulag um heimastjórn næst ekki fyrir þann dag.

Samkvæmt skoðanakönnunum og spám stjórnmálaskýrenda er útlit fyrir að tveir flokkar sem standa fyrir andstæðar skoðanir almennings, Lýðræðissinnaðir sambandssinnar og Sinn Fein, muni efla stöðu sína sem tveir stærstu flokkarnir á Norður-Írlandi. Lýðræðissinnaðir sambandssinnar er flokkur mótmælenda sem vilja samband við Bretland og Sinn Fein er flokkur kaþólikka sem vilja sameinast Írlandi.

Leiðtogi Lýðræðislegra sambandssinna, Ian Paisley, hefur neitað að starfa með Sinn Fein sem studdi baráttu Írska lýðveldishersins (IRA) gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×