Erlent

Vanhanen fékk hæstu einkunn

Matti Vanhanen
Matti Vanhanen

Matti Vanhanen, formaður Miðjuflokksins í Finnlandi, fær bestu einkunnina fyrir þekkingu og hegðun meðal forsætisráðherraefnanna í þingkosningunum sem fara fram í Finnlandi um miðjan mars.

Þetta kom fram í skoðanakönnun sem birtist í finnskum fjölmiðlum í gær.

Vanhanen fær 7,6 í einkunn fyrir þekkingu og 8,1 fyrir hegðun. Jyrki Katainen, fulltrúi Hægriflokksins, fékk 6,9 fyrir þekkingu og 7,7 fyrir hegðun, fulltrúi jafnaðarmanna, Eero Heinäluoma, fékk 6,8 í þekkingu og 7,5 fyrir hegðun, að sögn Hufvudstadsbladet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×