Erlent

Spenna vegna eldflaugavarna

Pútín segist ekki treysta fullyrðingum bandarískra stjórnvalda um að eldflaugavörnunum sé ekki beint gegn Rússlandi.
Pútín segist ekki treysta fullyrðingum bandarískra stjórnvalda um að eldflaugavörnunum sé ekki beint gegn Rússlandi. MYND/AP

Stjórnvöld og yfirmenn hersins í Rússlandi hafa harðlega gagnrýnt áætlanir Bandarikjanna um að setja upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum segja þetta hugsað til að verjast mögulegri árás frá löndum á borð við Íran og beinist alls ekki að Rússlandi.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist hins vegar ekki treysta því og hefur hótað að Rússland muni grípa til gagnaðgerða.

Haft var eftir háttsettum hershöfðingja í fjölmiðlum í gær að rússneski flugherinn muni auðveldlega getað grandað eldflaugavörnum Bandaríkjamanna í Evrópu.

Nokkrar þjóðir Evrópusambandsins, þar á meðal Frakkar, hafa lýst áhyggjum yfir því að uppsetning á eldflaugavarnakerfinu geti skaðað samskiptin milli Evrópu og Rússlands.

Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, kallaði í gær eftir viðræðum meðal þjóða Evrópusambandsins, Atlantshafsbandalagsins og Rússlands varðandi fyrirhugaðar eldflaugavarnir. Þýskaland situr nú í forsæti Evrópusambandsins.

Bandarísk stjórnvöld hafa átt í viðræðum við Tékkland, Pólland og Bretland um að eldflaugavarnir verði settar þar upp þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×