Áhugi á flug-æfingum hér 5. mars 2007 06:45 Jesper Helsø
Hans Jesper Helsø, yfirmaður danska heraflans, segist eiga bágt með að sjá þörf á því að orrustuþotur séu að staðaldri á Íslandi. Hann segir Dani áhugasama um að nýta Keflavíkurflugvöll til flugheræfinga, í samstarfi við fleiri Atlantshafsbandalagsríki. Helsø segist vænta þess að unnt verði að undirrita með vorinu samninga um slíkt og annað samstarf Íslendinga og Dana um öryggis- og varnarmál. „Það eru nokkur bandalagsríki, og bandalagið sjálft sem slíkt, sem hafa hagsmuna að gæta á Norður-Atlantshafi og hafa áhuga á að taka með virkum hætti þátt í að tryggja öryggi á svæðinu," segir Helsø og bætir við: „Drífum í því strax í ár að koma á virku samstarfi um æfingar og kerfisbundin skipti á upplýsingum." Auk Íslands og Danmerkur nefnir Helsø í þessu samhengi Bandaríkin, Noreg, Kanada og Bretland. Helsø segist hafa lesið ræðu Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra um öryggis- og varnarmál, sem hún flutti fyrir mánuði. Hann sjái ýmislegt jákvætt í ræðunni, einkum er varðar Íslensku friðargæsluna. Í friðargæsluverkefni á borð við það sem NATO sinnir nú í Afganistan sé alltaf þörf á borgaralegum sérfræðingum á borð við verkfræðinga, flugumferðarstjóra, hjúkrunarfólk og tölvunarfræðinga. Sjálfur hafi hann hitt íslensku sprengjusérfræðingana, sem um tíma þjónuðu með danskri herdeild í Írak, og sannfærst um að þar færu mjög hæfir menn. Helsø segist vel geta séð fyrir sér aukið samstarf Íslendinga og Dana af þessu taginu, þar sem Íslendingar legðu til borgaralega sérfræðinga en Danir vopnaða hermenn. Yfirmaður danska heraflans vill að virku samstarfi um æfingar og kerfisbundin skipti á upplýsingum verði komið á á næsta ári.AFP Samningar við Bandaríkjamenn um rekstur Íslenska loftvarnakerfisins (IADS) rennur út um miðjan ágúst næstkomandi. Helsø segir að NATO þurfi að meta þörfina á íslenska kerfinu fyrir loftvarnakerfi sitt. Hvort þörf sé á að reka það í óbreyttri mynd áfram þori hann ekki að segja til um, enda hafi tæknibreytingar einnig mikil áhrif þar á. NATO ákvað að ekki væri lengur þörf á ratsjárstöðinni í Færeyjum, sem þar var rekin þar til um síðustu áramót, og því spurning hvort bandalagið sjái ástæðu til að reka áfram fjórar ratsjárstöðvar á Íslandi. Ljóst sé að minnsta kosti, að allar aðildarþjóðirnar 26 þyrftu að vera sammála um þörfina á kerfinu, í núverandi eða breyttri mynd, til að grundvöllur skapaðist fyrir kostnaðarþátttöku bandalagsins.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Innlent Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ Erlent Ráðist á ungan dreng með piparúða Innlent Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Innlent Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Fleiri fréttir Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn Sjá meira