Erlent

Smyglaði fiski í pilsfaldinum

Áströlsk kona á fimmtugsaldri var nýverið dæmd í níu mánaða samfélagsþjónustu fyrir að smygla fiskum frá Asíu til Ástralíu.

Fiskarnir, sem konan faldi í pilsfaldi sínum, eru bæði friðaðir og verðmætir. Grunsemdir tollvarða vöknuðu þegar þeir heyrðu skvamp í fötum konunnar og við nánari athugun komu fimmtán pokar af vatni og fiski í ljós. Áströlsk tollyfirvöld líta athæfið alvarlegum augum, sérstaklega vegna smithættu í áströlskum fiskiðnaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×