Erlent

Dómsdagsgeymsla á Svalbarða

Norsk stjórnvöld áforma að svokölluð „dómsdagsgeymsla“ á Svalbarða, sem mun geyma fræ af öllum þekktum tegundum í heiminum, verði tilbúin árið 2008. BBC greinir frá þessu á fréttavef sínum.

Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða verður byggð inni í fjallshlíð á hinni ísilögðu Spitsbergen sem er stærsta eyjan í eyjaklasanum Svalbarða. Verður hún hönnuð til að þola hnattrænar hörmungar á borð við kjarnorkustríð eða náttúruhamfarir sem muni eyðileggja fæðuuppsprettur í heiminum.

Geymslan mun hafa pláss fyrir þrjár milljónir fræsýna og verja norsk stjórnvöld sem svarar 337 milljónum króna í að reisa geymsluna.

Fræjum hefur verið safnað alls staðar að úr heiminum til að flytja í geymsluna og hefur The Global Crop Diversity-sjóðurinn haft umsjón með söfnuninni og ber ábyrgð á því að tryggja „varanlega varðveislu fjölbreytileika jarðargróðurs“.

Geymslunni var valinn staður á Svalbarða vegna þess hversu afskekktur eyjaklasinn er og einnig vegna þess að það bauð upp á þann jarðfræðilega stöðugleika sem þarf í langtímaverkefni af þessu tagi, að sögn Cary Fowler, framkvæmdastjóra sjóðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×