Dæmt um þjóðarmorð 26. febrúar 2007 06:45 Síðastliðið sumar voru lík 305 fórnarlamba Bosníustríðsins lögð til grafar í bænum Prijedor í Bosníu, rúmum áratug eftir að stríðinu lauk. Líkin fundust í ómerktum fjöldagröfum. mynd/ap
Á morgun kveður Alþjóðadómstóllinn í Haag upp úrskurð sem teljast verður sögulegur hvernig svo sem hann fellur. Tekin verður afstaða til þess hvort Serbar hafi gerst sekir um þjóðarmorð á tímum Bosníustríðsins árin 1992 til 1995. Hér er ekki spurt hvort einstaklingar, það er leiðtogar ríkisins og hermenn þess, teljist sekir um glæpinn heldur serbneska ríkið eða serbneska þjóðin í heild. Bosnía og Hersegóvína sögðu skilið við Júgóslavíu árið 1992 og hófst þá þriggja ára stríð sem talið er að hafi kostað meira en 100 þúsund manns lífið. Árið 1993 kærði Bosnía það sem þá var eftir af Júgóslavíu til Alþjóðadómstólsins fyrir þjóðernishreinsanir og krafðist fjárhagslegra skaðabóta. Málið hefur verið til umfjöllunar hjá dómstólnum allar götur síðan og nú er loks að vænta endanlegs úrskurðar, sem verður á stærð við heila bók. Bosníumenn halda því fram að þjóðernishyggja Serbíu hafi alið á þjóðarmorðshatri gagnvart Bosníu, auk þess sem fjárhags- og hernaðaraðstoð frá Serbíu hafi gert Bosníu-Serbum kleift að fremja þjóðarmorð og enn fremur hafi júgóslavneskir herforingjar tekið virkan þátt í því að reka múslima út úr Bosníu. „Það er samansafn einstakra glæpaverka, hin skelfilega endurtekning illra verka, sem á endanum verður greinilega að stórglæpnum þjóðarmorði,“ sagði Thomas Franck, hinn bandaríski lögmaður Bosníu, fyrir réttinum á síðasta ári. Serbar segja málið ekki svona einfalt. Samkvæmt skilgreiningu á þjóðarmorði felur það í sér skýran vilja til að þurrka út þjóðernishóp eða kynþátt, annaðhvort í heild eða að hluta, eða í það minnsta að hrekja hann burt frá ákveðnum svæðum. Serbar segjast aldrei hafa unnið kerfisbundið að neinum slíkum áformum. „Munstur „venjulegra glæpa“ getur ekki einfaldlega tekið á sig mynd þjóðarmorðs,“ sagði Sasa Obradovic við réttarhöldin í maí, heldur verður það að vera „ákveðinn glæpur, framinn með ákveðnu hugarfari“.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira