Hundrað ára fangelsi 24. febrúar 2007 01:30 Félagar hins dæmda sögðu bandaríska hermenn í Írak undir gífurlegu álagi. MYND/AFP
Bandarískur herdómstóll dæmdi í gær Paul E. Cortez, 24 ára bandarískan hermann, í 100 ára fangelsi fyrir að hafa í mars á síðasta ári, ásamt fjórum félögum sínum, nauðgað 14 ára íraskri stúlku og síðan myrt bæði hana og fjölskyldu hennar. Einn félaga hans og jafnaldri, James Barker, hefur áður hlotið 90 ára fangelsi fyrir sinn hlut í glæpunum, sem þykir eitt versta voðaverkið sem bandarískir hermenn hafa framið í Írak. Hvorugur þeirra segist þó hafa framið morðin, heldur hafi þriðji hermaðurinn, Steven D. Green, skotið bæði stúlkuna, systur hennar og foreldra á heimili þeirra í Mahmoudiya. Að ódæðinu loknu reyndu þeir að brenna lík stúlkunnar. Þeir brenndu síðan sín eigin föt og hentu morðvopninu í skurð. Tárin streymdu niður vanga Cortez þegar hann játaði sekt sína fyrir dómi og baðst afsökunar á gerðum sínum, sem hann sagðist ekki hafa neina skýringu á. Fram kom í réttarhöldunum að hermennirnir hefðu verið úrvinda af þreytu og undir gífurlegu álagi. „Þetta er ekki einsdæmi. Við höfum séð svona í öðrum stríðum,“ sagði sálfræðingur að nafni Charles Figley, sem bar vitni sem sérfræðingur. Saksóknarar sögðu álagið enga afsökun. Þrír hermannanna bíða enn réttarhalda.
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Innlent Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Innlent Fleiri fréttir Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Sjá meira