Skæða fuglaflensan að breiðast út á ný 5. febrúar 2007 06:30 Dauður fugl liggur nærri vegbrún í Suffolk, þar sem búið er að setja upp varúðarskilti vegna fuglaflensunnar sem greindist á kalkúnabúi þar. MYND/AP
Heimsbyggðin ætti að vera við því búin að fuglaflensa breiðist út á næstu mánuðum. Þetta segir sá fulltrúi Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að samhæfa alþjóðlegar aðgerðir gegn útbreiðslu skæðasta afbrigðis sjúkdómsins, sem getur smitast í menn og yfir 160 manns hafa dáið úr svo vitað sé, flestir í Suðaustur-Asíu. Fulltrúinn, dr. David Nabarro, sagði hins vegar í gær að hann ætti ekki von á því að hið skæða H5N1-afbrigði fuglaflensunnar ætti eftir að breiðast út í Bretlandi frá kalkúnabúinu í Suffolk, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrir helgina. Snör viðbrögð yfirvalda og eigenda kalkúnabúsins til að hindra að smit bærist út frá búinu gæfu að sögn Nabarros tilefni til að ætla að það gengi eftir. Það kæmi þó ekki í ljós fyrr en á næstu dögum, tjáði Nabarro AP-fréttastofunni frá Indónesíu, en þar í landi hefur fuglaflensan valdið langmestum usla frá því hún greindist fyrst árið 2003. Nabarro sagði hins vegar að búast mætti við því að H5N1-fuglaflensutilfelli skytu upp kollinum á næstu mánuðum í löndum þar sem veikinnar hefði ekki orðið vart fram til þessa. Hún myndi fyrst og fremst breiðast út með farfuglum. „Ég býst við að smits verði vart víða á næstu þremur til fjórum mánuðum,“ sagði Nabarro. Hann byggði þessa spá sína á því sem gerst hefði í fyrra. Þá barst smitið með farfuglum meðal annars til Skotlands og Skandinavíu, en ekki til Íslands. Verið er að byggja nýja rannsóknastofu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum, þar sem á að verða hægt að greina sýni til að skera úr um hvort dauðir fuglar hafi verið sýktir af fuglaflensu. Útbreiðsla hins skæða H5N1-afbrigðis fuglaflensu hefur valdið því að milljónum alifugla hefur verið eytt á síðustu árum, flestum í SA-Asíu, þar sem veiran greindist fyrst fyrir fjórum árum. Hundruð manna hafa smitast og minnst 160 dáið úr sýkinni á þessu tímabili, þar af um 60 manns í Indónesíu.
Mest lesið Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Innlent Stillir sér upp á miðjunni Innlent Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Veður Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Erlent Sinueldur við Framheimilið Innlent Fleiri fréttir „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Sjá meira