Eru að smíða úranskilvindur 5. febrúar 2007 06:15 Unnið að vinnslu úrans til auðgunar í rannsóknarstöðinni í Natanz í Íran. MYND/Getty
Hundruð verkamanna í Íran vinna nú hörðum höndum að því að smíða úranskilvindur neðanjarðar í kjarnorkurannsóknastöðinni í Natanz, sem er um 100 km suður af Teheran. Frá þessu greindu erindrekar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í Vínarborg á föstudag. Í þessum áfanga kjarnorku-áætlunar Írana ætla þeir að koma upp 3.000 úranskilvindum, en með þeim er hægt að auðga úran, bæði til að framleiða eldsneyti til raforkuframleiðslu og efni í kjarnorkusprengjur. Með smíði nýju skilvindanna bætist enn ein ögrun af hálfu Írana við þær sem á undan hafa komið í hinni langvinnu alþjóðlegu deilu um kjarnorkuáætlun þeirra. Fullvíst má telja að þessar fréttir verði Bandaríkjamönnum tilefni til að enn verði hert á þeim refsiaðgerðum, sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur þegar samþykkt að Íranar skuli beittir, hætti þeir ekki auðgun úrans og sýni Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) fullan samstarfsvilja. Erindrekar IAEA, sem gáfu AP-fréttastofunni þessar upplýsingar, lögðu áherslu á að vinnan sem hafin væri í Natanz væri aðeins til undirbúnings skilvindusmíði. Engin ný skilvinda væri tilbúin til notkunar, enn sem komið væri. Talsmaður kjarnorkuáætlunar Írana tjáði AP að settar hefðu verið upp eftirlitsmyndavélar í neðanjarðarrýminu þar sem skilvindurnar verða settar upp. Þar með álitu Íranar að þeir hefðu uppfyllt skilyrði IAEA fyrir framkvæmdinni. Jafnvel þótt uppsetning 3.000 skilvinda gangi að óskum áætla sérfræðingar að það kunni að taka Írana nokkkur ár að fá þær til að verka sem skyldi. Takist það, yrðu þeir færir um að framleiða efni í tvær kjarnorkusprengjur á ári með hjálp þessa búnaðar. Langtímamarkmið Írana er að setja upp 54.000 úranskilvindur. Hugveitan International Institute for Strategic Studies í Lundúnum, sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf um öryggismál, birti á fimmtudag skýrslu þar sem áætlað er að takist Írönum að halda áætlunum sínum til streitu verði þeir færir um að smíða sína fyrstu kjarnorkusprengju eftir tvö til þrjú ár. Yfirmaður öryggismálastofnunar Bandaríkjanna, John Negroponte, hefur sagt að fjögur til fimm ár væru í að Íranar næðu svo langt.
Mest lesið Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Innlent Stillir sér upp á miðjunni Innlent Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Veður Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Erlent Sinueldur við Framheimilið Innlent Fleiri fréttir „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Sjá meira