Erlent

Ný alþjóðastofnun refsi skussum

Hnattlíkan sem sýnir væntanlegar loftslagsbreytingar á vísindasafni í Tókýó.
Hnattlíkan sem sýnir væntanlegar loftslagsbreytingar á vísindasafni í Tókýó. MYND/AP

Fjörutíu og fimm ríki hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Frakka um að sett verði á stofn ný alþjóðleg umhverfisstofnun, sem hefði vald til að fylgja eftir samþykktum um ráðstafanir til að hægja á hlýnun loftslags og aðrar náttúruverndaraðgerðir. Hugmyndin er sú að hin nýja stofnun hefði vald til að ákveða refsiaðgerðir gegn skussum.

Í hópi stuðningsríkja tillögunnar er ekki þau ríki að finna sem losa langmest magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið, svo sem Bandaríkin, Kína eða Indland. Ísland er heldur ekki á listanum.

Frönsk stjórnvöld settu fram tillöguna að stofnun hinnar nýju alþjóðastofnunar á laugardag, daginn eftir að Sérfræðinganefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC, birti nýjustu skýrslu sína, þar sem skýrar er kveðið að orði en nokkru sinni fyrr um að hlýnun loftslags á jörðinni sé að mestu af mannavöldum. „Þetta er á okkar ábyrgð. Framtíð mannkynsins veltur á því að við grípum tafarlaust til aðgerða,“ sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands sem nú er jafnframt í formennskuhlutverkinu bæði í Evrópusambandinu og G-8-hópi mestu iðnvelda heims, sagði í viðtali um helgina að hún hygðist leggja til strangari takmörk á útblástursmengun bíla í Evrópusambandinu í því skyni að efla aðgerðir Evrópuríkja gegn loftslagsbreytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×