Erlent

Skilyrði ítrekuð

Christopher Hill. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og suður-kóreskur starfsbróðir hans, Chun Yung-woo, í Seúl í gær.
Christopher Hill. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og suður-kóreskur starfsbróðir hans, Chun Yung-woo, í Seúl í gær. MYND/AP

Norður-Kóreustjórn verður að standa að fullu við skuldbindingar um að stöðva kjarnorkuvígvæðingarbrölt sitt. Þessa kröfu ítrekaði fulltrúi Bandaríkjastjórnar í sex-velda-viðræðunum svonefndu, sem hefjast eiga að nýju í Peking nú í vikunni með þátttöku beggja Kóreuríkjanna, Japans, Kína, Rússlands og Bandaríkjanna.

Samkvæmt heimildum japanska dagblaðsins Asahi Shimbun kunna N-Kóreumenn að vera reiðubúnir að slökkva á kjarnakljúfnum í kjarnorkurannsóknamiðstöð þeirra í Yongbyon og fallast á eftirlit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, gegn öryggistryggingum og að refsiaðgerðum verði aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×