Erlent

Ók á dreng í skólamatsal

Hinn 84 ára gamli Grace Keim olli dauða átta ára drengs í Bandaríkjunum í síðustu viku þegar hann ók í gegnum matsal grunnskóla á leið sinni í ökutíma fyrir eldri borgara. Amanda Wesling, móðir drengsins, hefur nú hafið herferð gegn eldra fólki í umferðinni.

Slysið í vikunni, sem og önnur sambærileg slys þar sem eldri ökumenn komu við sögu, hafa vakið upp spurningar í Bandaríkjunum um það hvenær fólk er orðið of gamalt til að aka bíl, en einhverjar aldurstakmarkanir eru þegar í gildi sums staðar í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×