Erlent

Áhætta tengd geni

Myndin er tekin á sjúkrastofnun í Frakklandi.
Myndin er tekin á sjúkrastofnun í Frakklandi. MYND/AFP

Hópur vísindamanna frá ýmsum löndum hefur fundið gen sem virðist auka líkurnar á því að fólk fái Alzheimer-sjúkdóminn. Vonast er til að þessi uppgötvun geri vísindamönnum auðveldara að finna meðferð gegn sjúkdómnum þegar fram líða stundir.

Vísindamennirnir, sem eru frá Kanada, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Ísrael og Japan, skýrðu frá rannsóknum sínum á sunnudaginn á vefsíðu tímaritsins Nature Genetics. Rannsóknin náði til meira en sex þúsund manns og sýnir fram á að ákveðnar gerðir af geninu, sem nefnist SORL1, geti átt þátt í að sjúkdómurinn geri vart við sig á seinni árum.



Enn er þó óvíst með öllu hvort og þá hve mikil áhrif genið hefur á sjúkdóminn, en með því einu að varpa ljósi á það hvernig sjúkdómurinn þróast þykir þessi rannsókn mikilvægur áfangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×