Erlent

Pepsi varaði Coca-Cola við

Fyrrverandi ritari hjá Coca-Cola fyrirtækinu er ákærður fyrir að hafa tekið trúnaðargögn og sýni af vöru sem ekki var búið að kynna, í þeim tilgangi að selja til samkeppnisaðilans Pepsi. Verjandi ritarans segir hann hafa verið fórnarlamb blekkinga tveggja fyrrverandi fanga sem einnig eru ákærðir.

Þessi meinta fyrirætlun komst upp í maí í fyrra í kjölfar leynilegrar rannsóknar Alríkislögreglu Bandaríkjanna eftir að Pepsi hafði varað Coca-Cola við.

Val á kviðdómi fer fram í þessari viku og aðalmeðferð hefst 22. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×