Erlent

Vilja bann við hatursglæpum

Brigitte Zypries
Brigitte Zypries

Brigitte Zypries, dómsmálaráðherra Þýskalands, segir Þjóðverja ætla að vinna að því að Evrópusambandið samþykki bann við svonefndum hatursglæpum, sem felast í því að hvetja til ofbeldis og haturs – meðal annars með því að afneita því að helför gyðinga á tímum nasista hafi nokkru sinni átt sér stað.

Í nokkrum Evrópusambandsríkjum er nú þegar í gildi bann við því að afneita helförinni, þar á meðal í Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki, Belgíu og á Spáni.

Breski sagnfræðingurinn David Irving sat á síðasta ári í fangelsi í Austurríki fyrir að hafa afneitað helförinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×