Erlent

Kastali Drakúla settur á sölu

Leðurblökur sem stundum má sjá sveima kringum virkisveggina fullkomna ímynd kastala Drakúla.
Leðurblökur sem stundum má sjá sveima kringum virkisveggina fullkomna ímynd kastala Drakúla. nordicphotos/afp

Hinn sögufrægi Bran-kastali í Transylvaníu í Rúmeníu hefur verið auglýstur til sölu fyrir sextíu milljónir evra.

Kastalinn, sem var reistur á 15. öld, er af sumum talinn hafa verið heimili hins blóðþyrsta fursta Vlad Tepes. Engar sannanir eru fyrir því en margt bendir til að Tepes hafi dvalið í kastalanum í einhvern tíma hið minnsta.

Grimmd Tepes varð rithöfundinum Bram Stoker innblástur að einni frægustu sögupersónu allra tíma, blóðsugunni Drakúla greifa.

Árlega heimsækja um 400.000 ferðamenn kastalann, en kostnaður af viðhaldi hans er það sem rekur eigandann – þann arm Habsborgarættarinnar sem var konungsfjölskyldan í Rúmeníu á árum áður – til að selja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×