Erlent

Deilur í Mexíkó

Áform yfirvalda mexíkóska fylkisins Coahuila um að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra hefur valdið miklum titringi í landinu. Stjórnarflokkur Felipes Calderon forseta hefur mótmælt frumvarpi að lögum um hjónabönd samkynhneigðra, sem og kaþólska kirkjan, en hún kallar þau aðför að hjónabandinu.

Gangi lögin í gegn verður Coahuila annað mexíkóska fylkið til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra en í nóvember síðastliðnum leyfðu yfirvöld Mexíkóborgar slík hjónbönd.

Yfirvöld í Kosta Ríka og yfirvöld í Kólumbíu íhuga einnig að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×