Þrír fórust í fárviðri 15. janúar 2007 03:45 Þessi maður fylgdist með hamagangi hafsins við höfnina í Malmö í Svíþjóð í gær. MYND/AP
Einn drengur og tveir karlmenn fórust í Svíþjóð í gær þegar ofsaveður reið yfir Skandinavíu. Níu ára drengur lést á sjúkrahúsi skömmu eftir að tré féll ofan á hann í bænum Motala um hádegisbilið. Skömmu síðar varð rúmlega sextugur maður einnig fyrir tré sem féll á bifreið hans í Jön-köping og lést hann samstundis. Eiginkona hans var með honum í bílnum, en hún slapp með minni háttar meiðsli. Síðar um daginn fórst svo 24 ára gamall maður í Källsjö þegar tré féll á lítinn flutningabíl sem hann ók. Hvassviðri olli því að skipa- og lestasamgöngur sunnan til í Svíþjóð, syðst í Noregi og úti um alla Danmörku nánast lömuðust á tímabili. Eyrarsundsbrúnni milli Svíþjóðar og Danmerkur var lokað fyrir allri umferð og sömuleiðis Stórabeltisbrúnni milli Fjóns og Sjálands. Tré rifnuðu upp með rótum víða á Jótlandi og stöðvaðist umferð um vegi af þeim sökum. „Stóru trén velta eins og tannstönglar,“ hafði danska dagblaðið Politiken eftir lögregluþjóni í Hjørring, nyrst á Jótlandi. Í Kaupmannahöfn var heilu götunum lokað af ótta við að þök fykju af húsum, en ekkert alvarlegt tjón varð þó af völdum veðursins í Danmörku. Veðrið gekk yfir Skandinavíu frá vestri til austurs og var fólk varað við að vera á ferli utandyra. Lögregla og slökkvilið höfðu nóg að gera, einkum við að sinna tilkynningum um fallin tré eða lausar þakplötur. Algengt er að mikið hvassviðri gangi yfir Skandinavíu í janúarmánuði. Óveðrið í gær er það versta á þessum slóðum síðan 9. janúar á síðasta ári. Norskir veðurfræðingar hafa haft þann sið að gefa verstu óveðrunum nöfn. Hvassviðrið sem gekk yfir í gær hlaut nafnið Per en stormurinn sem gerði hvað mestan óskunda fyrir ári hét Guðrún.
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Hafþór Júlíus kærður til lögreglu af fyrrverandi kærustu Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent „Þetta er ekki eiturgas“ Innlent Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Innlent Kviknaði í haug af timburkurli Innlent Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Innlent Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Innlent Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Sjá meira