Erlent

US Airways reynir fjandsamlega yfirtöku á Delta

MYND/AP

Bandaríska flugfélagið US Airways gerði í gær fjandsamlegt yfirtökutilboð upp á rúma 560 milljarða króna í flugfélagið Delta Airlines þrátt fyrir að Delta hefði endurtekið tilkynnt að þar á bæ hefðu menn ekki áhuga á samruna. Afurð slíks samruna myndi verða eitt stærsta flugfélag í heimi.

Því hefur verið spáð í nokkurn tíma að önnur flugfélög myndu reyna yfirtöku þegar greiðslustöðvun hins stórskulduga Delta Airlines tekur enda um mitt næsta ár. Búist er við fjölda gagntilboða frá öðrum flugfélögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×