Erlent

Kabila sigraði í Kongó

MYND/AP

Joseph Kabila, sitjandi forseti í Austur-Kongó, fær að halda embætti sínu í annað kjörtímabil. Hann hlaut 58% gildra atkvæða í spennuþrungnum kosningum, sem eru hinar fyrstu í landinu í meira en fjóra áratugi þar sem fleiri en einn flokkur á fulltrúa. Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi, sem varð í öðru sæti, hefur hins vegar ekki viðurkennt ósigur sinn.

Hann hefur þegar sakað kjörnefnd og stuðningsmenn forsetans um víðtækt kosningasvindl. Hann hefur einnig hótað því að virða úrslitin að vettugi, sem og vopnahléssamkomulag verði brotið ef honum sýnist eitthvað gruggugt við kosningaúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×