Erlent

Lavrov segir vesturveldin refsa Íran

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa. MYND/AP

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, gagnrýndi í dag vesturveldin fyrir að reyna að refsa Íran í uppkasti að ályktun öryggisráðsins. Hann gagnrýndi meðal annars ferðabann á íranska stjórnmálamenn og efnahagsþvinganir á lögleg viðskipti.

Lavrov sagði um Evrópuþjóðir sem tekið hafa þátt í viðræðunum og Bandaríkin að með ferðabanninu væri verið að refsa ráðamönnum í Íran og bætir við: "við vorum sammála um það frá upphafi að gera það ekki."

Hann sakar vesturveldin um að reyna að setja inn í uppkastið yfirlýsingar sem ógildi hömlur á viðskiptaþvingunum á hendur Íran. Þannig verði skorið á viðskiptatengsl við Íran, jafnvel þar sem viðskiptin eru fullkomlega lögleg.

Bretar og Frakkar dreifðu uppkastinu fullbúnu til meðlima öryggisráðsins til þess að þeir gætu búið sig undir atkvæðagreiðslu um málið. Ekki hefur hins vegar verið ákveðið hvenær kosið verður um málið í ráðinu, enda á enn eftir að leysa ágreining við Rússa og Kína, sem hafa neitunarvald í öryggisráðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×