Erlent

Blair segir Íran ógna friði

Blair fundaði með forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Khalifa bin Zayed, í gær.
Blair fundaði með forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Khalifa bin Zayed, í gær. MYND/AP

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, nefndi Íran sem eina helstu ógnina við frið í Mið-Austurlöndum í afdráttarlausri ræðu í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Með þessari ræðu lýkur opinberri ferð Blairs um Mið-Austurlönd. Hann sagði baráttu hófsamra og öfgasinnaðra vera tímamótavandamál fyrir heimsbyggðina.

Blair hvatti til þess að fólk vaknaði af blundi og hæfi að berjast gegn öfgasinnum hvarvetna og ofbeldinu sem þeir fæddu af sér. Þetta sagði hann vera helstu áskorun 21. aldarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×