Erlent

Tyrkland hefur frest til 6. desember

Stjórnvöld í Finnlandi, sem er í forsæti Evrópusambandsins, hafa sett Tyrklandi tímamörk, að þarlend stjórnvöld semji við kýpversk stjórnvöld fyrir 6. desember, ellegar seinki aðildarviðræðum Tyrklands og Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hittist þann sjötta næsta mánaðar og utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna taka ákvörðun þann 11. desember.

"Tímamörkin ákvarðast í raun af því þegar framkvæmdastjórnin hittist og kynnir sína ráðgjöf," sagði Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands. Tyrkir segjast hins vegar bíða þess að ESB taki á málefnum tyrkneska hluta Kýpur, sem býr við efnahagslega einangrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×