Erlent

Rússneski njósnarinn nýtur lögregluverndar á sjúkrahúsi

Rússneski njósnarinn Alexander Livtinenko fær lögregluvernd á sjúkrahúsi í Bretlandi þar sem hlúð er að honum eftir að eitrað var fyrir honum í kvöldmat í London. Hann hafði þá snætt með leyndardómsfullum Ítala, sem sagðist vilja hitta hann því hann hefði upplýsingar sem tengdust morðinu á rannsóknarblaðamanninum Önnu Politkovskayu en morðið á henni hefur vakið mikla reiði í Rússlandi.

Livtinenko var njósnari fyrir KGB og síðar rússnesku leyniþjónustuna en fékk pólitískt hæli í Bretlandi eftir að hafa opinberlega ásakað yfirmenn sína um að hafa fyrirskipað launmorð á háttsettum embættismanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×