Erlent

Tamíltígrar hafna hjálpargagnalest, vilja láta opna veginn

Stjórnarhermaður á Sri Lanka.
Stjórnarhermaður á Sri Lanka. MYND/AP
Tamíltígrar á Sri Lanka höfnuðu í dag boði stjórnvalda á Sri Lanka um að senda eina einstaka bílalest með hjálpargögn til norðurhluta eyjunnar sem hefur verið einangraður síðan í ágúst og krefjast þess í staðinn að þjóðvegurinn milli suður- og norðurhluta eyjunnar verði opnaður að fullu á ný.

Mahinda Rajapakse, forseti landsins, lokaði A9 hraðbrautinni í ágúst, sem tengir Jaffna-skagann í norðri við aðra hluta eyjarinnar. Hann studdi ákvörðun sína þeim rökum að árásir uppreisnarsveita hefðu takmarkað um of öryggi vegarins. Þar með var um hálf milljón Tamíltígra einangraðir frá afganginum af eyjunni. Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi látið flytja matarbirgðir til norðurhlutans sjóleiðina, þá eru matur af skornum skammti.

Stjórnmálaskýrendur hlynntir stjórnvöldum segja að Tígrarnir vilji láta opna veginn vegna þess að lokunin hamli ferðum skæruliða þeirra og komi í veg fyrir stóra tekjulind, sem er að taka "toll fyrir að tryggja öryggi" farartækja sem eiga leið um veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×