Erlent

Lögreglan yfirheyrir forsætisráðherrann

Tony Blair sætti í gær yfirheyrslum bresku lögreglunnar vegna meintrar mútuþægni innan ríkisstjórninnar. Hann er þó ekki grunaður um að þiggja mútur, heldur mætti eingöngu sem vitni.
Tony Blair sætti í gær yfirheyrslum bresku lögreglunnar vegna meintrar mútuþægni innan ríkisstjórninnar. Hann er þó ekki grunaður um að þiggja mútur, heldur mætti eingöngu sem vitni. MYND/AP

Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, var í gær yfirheyrður af bresku lögreglunni vegna rannsóknar á hneykslismáli sem varðar meinta sölu ríkisstjórnarinnar á aðalstitlum.

Talsmaður Blairs tók fram að forsætisráðherrann hefði eingöngu verið kallaður fyrir sem vitni og að hann hefði ekki réttarstöðu sakbornings í þessu máli. Hins vegar er afar sjaldgæft að breska lögreglan yfirheyri forsætisráðherra í rannsóknum sínum.

Sá er siðurinn að forsætisráðherra Bretlands berast ábendingar um fólk sem heiðra ber fyrir ýmiss konar verk. Hann færir svo drottningu nöfn þessa fólks, og getur heiðurinn sem þeim hlotnast verið allt frá orðum upp í riddara-tign og aðalstitla.

Ábendingarnar koma úr ýmsum áttum, en ekki er óalgengt að stjórnmálaflokkar útnefni menn.

Rannsókn lögreglunnar felst í því hvort einhverjir flokkar hafi lofað mönnum heiðri drottningar og þegið í staðinn lán eða annan fjárhagslegan stuðning.

Lög um fjármögnun stjórnmálaflokka Bretlands leyfa nafnleynd þegar stjórnmálaflokkum eru boðin lán. Hið sama gildir þó ekki þegar um bein fjárframlög er að ræða.

Lögreglurannsókn hefur leitt í ljós að Verkamannaflokkurinn, sem Blair leiðir, hafi þegið slík lán frá alls tólf aðilum og mun upphæðin nema nær fjórtán milljónum punda, sem samsvara tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna.

Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndir demókratar hafa einnig viðurkennt að hafa þegið slík nafnlaus lán.

Blair hefur áður viðurkennt að sumir þeirra stuðningsmanna sem buðu lánin hafi síðar verið útnefndir til setu í lávarðadeild breska þingsins.

Lögreglan rannsakar því hvort háttsettir aðilar innan flokkanna þriggja hafi lofað lánardrottnunum heiðri í stað fjárins.

Blair var yfirheyrður í rúma hálfa aðra klukkustund, en forsætisráðherrann, sem er lærður hæstaréttarlögmaður, hafði ekki lögfræðing viðstaddan.

„Forsætisráðherrann útskýrði af hverju hann útnefndi hvern og einn,“ sagði talsmaður Blairs sem ræddi við fréttamenn undir nafnleynd.

Þegar hafa nokkrir háttsettir meðlimir Verkamannaflokksins verið yfirheyrðir, þeirra á meðal vísindaráðherrann Sainsbury lávarður. Jafnframt var Michael Howard, fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins, yfirheyrður í síðasta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×