Erlent

Öryggismál á Kastrup rannsökuð í þaula

Nákvæm rannsókn er hafinn á ölllum öryggismálum Kastrup flugvallar í Kaupmannahöfn, eftir tvö nýleg atvik, þar sem minnstu munaði að stórslys yrði. Í báðum tilvikum var flugvélum ekið út á flugbrautir, þar sem flugvélar voru um það bil að lenda. Þakka má snarræði flugmanna í báðum tilvikum, að ekki fór verr.Talið er að einungis hafi munað tíu til fimmtán metrum að vélarnar rækjust á, í báðum tilvikunum. -



Fleiri fréttir

Sjá meira


×