Erlent

Búið að slökkva eldinn í Gamla Stan í Svíþjóð

MYND/ENEX

Búið er að slökkva að mestu eldinn sem kom upp í fjölbýlishúsi í Gamla Stan, einu elsta hverfi Stokkhólms, í morgun. Mikill eldur kom upp og voru 40 slökkviliðsmenn að störfum þegar mest lét en nærliggjandi hús voru rýmdi vegna ótta við að eldurinn kynni að berast þangað.

Þrír slösuðust í tengslum við brunann, borgari sem var fluttur með reykeitrun á sjúkrahús, lögreglumaður sem fékk múrbrot í hausinn og slökkvilismaður sem féll niður úr stiga. Slökkviliðsmenn kanna nú hvort einhvers staðar leynist glóð í húsinu en rannsókn lögreglu á eldsupptökum hefst síðar í dag.

Húsið sem um ræðir hefur verið nefnt Petersenska-húsið og var byggt á árunum 1645-1659. Það hefur að stærstum hluta verið óbreytt frá þeim tíma en ekki liggur fyrir hversu miklar skemmdir urðu á því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×