Pinochet fær ekki viðhafnarútför 11. desember 2006 12:15 Lögregla beitti táragasi og vatnsþrýstidælum gegn andstæðingum Pinochets í Santiago í nótt. MYND/AP
Til átaka kom í Santiago, höfuðborg Chile, í gærkvöldi eftir að fréttir bárust af því að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, væri látinn. Pinochet fær ekki viðhafnarútför og þjóðarsorg hefur ekki verið lýst yfir í landinu. Pinochet var níutíu og eins árs. Hann hafði verið heilsutæpur um nokkurt skeið og fékk alvarlegt hjartaáfall viku fyrir andlát sitt. Hann var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 og ríkti í sautján ár. Á þeim tíma voru yfir þrjú þúsund manns myrtir eða látnir hverfa. Talið er að allt að tuttugu og átta þúsund manns hafi sætt pyntingum meðan á ógnarstjórninni stóð. Marg sinnis hefur verið reynt að draga Pinochet fyrir dóm en án árangurs. Í nóvember gaf hann út yfirlýsingu og sagðist taka pólitíska ábyrgð á ofbeldinu sem var framið í stjórnartíð hans. Andstæðingar Pinochets fögnuðu dauða hans á götum Santiago, höfuðborgar Chile, í gærkvöldi en á samta tíma syrgðu stuðningsmenn hans leiðtoga sinn fyrir utan hersjúkrahúsið þar sem hann lést. Til átaka kom milli bandamanna einræðisherrans fyrrverandi og andstæðinga hans þegar leið á nóttina og þurfti lögregla að beita táragasi og vatnsþrýstidælum á óeirðaseggi. Fjölmargir voru handteknir en ekki er vitað hvort einhverjir særðust í átökunum. Pinochet fær ekki viðhafnarútför og þjóðarsorg verður ekki lýst yfir í landinu. Flaggað verður þó í hálfa stöng í opinberum byggingum í Chile í dag. Pinochet verður jarðsettur á morgun og fær útför í samræmi við stöðu sína hjá hernum í Chile.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira