Erlent

Páfi fordæmir launmorðið í Líbanon

Benedikt XVI páfi.
Benedikt XVI páfi. MYND/AP

Benedikt sextándi páfi fordæmdi í morgun launmorð á iðnaðarráðherra Líbanons, Pierre Gemayel, sem var einn valdamesti stjórnmálaleiðtogi kristinna maróníta í Líbanon. Hann kallaði morðið grófa árás og hvatti Líbana til að "vara sig á dörkum öflum sem reyndu að eyðileggja landið.

Þetta kom fram í vikulegri ræðu páfa fyrir pílagríma og ferðafólk á Péturstorginu í Róm.

Marónítatrúin er nátengd kaþólskri trú og er marónítakirkjan mjög fjölmenn í Líbanon. Marónítatrúin byrjaði að klofna frá kaþólsku kirkjunni á fimmtu öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×