Erlent

Býst við fleiri launmorðum í Líbanon

Walid Jumblatt leiðir stjórnmálahreyfingu drús trúarhópsins.
Walid Jumblatt leiðir stjórnmálahreyfingu drús trúarhópsins. MYND/AP

Leiðtogi drús trúarhópsins í Líbanon, Walid Jumblatt, sagði í morgun að hann byggist allt eins við fleiri pólitískum launmorðum á ráðherrum og þingmönnum sem beinist gegn meirihlutanum í þinginu. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í morgun, degi eftir að leiðtogi kristins stjórnmálaflokks var ráðinn af dögum í gær.

"Við verðum að búast við, það er álit mitt, því miður, fleiri pólitískum launmorðum á ráðherrum og þingmönnum," sagði Jumblatt í morgun. Iðnaðarráðherra Líbanons var myrtur í skotárás á bílalest hans um hábjartan dag í gær.

Jumblatt sagðist telja að Sýrlensk stjórnvöld væru að reyna að trufla stofnun og framgang sérstaks dómstóls sem rétta mun yfir sakborningum vegna morðsins á Rafik Hariri. Jumblatt er harður andstæðingur Sýrlandsstjórnar og þeirra ítaka sem hún hefur í líbönskum stjórnmálum og þjóðlífi, líkt og bæði Hariri og Gemayel, sem var myrtur í gær.

Meiri upplýsingar um drús trúarhópinn er að finna á wikipediu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×